Fréttir

Þjónustunotendur mega ekki bera kostnað af óvissu og ágreiningi

By september 22, 2026No Comments

Fagráð Félagsráðgjafafélags Íslands um áfengis- og annan vímuefnavanda lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu meðferðarþjónustu SÁÁ og kallar eftir því að tryggt verði að ágreiningur og óvissa í starfseminni bitni ekki á fólki sem þarf á meðferð að halda.

Fagráðið bendir á að SÁÁ hafi um áratugaskeið gegnt lykilhlutverki í íslensku heilbrigðis- og velferðarkerfi og að fjöldi einstaklinga og fjölskyldna reiði sig á örugga, faglega og samfellda þjónustu samtakanna.

Sérstakar áhyggjur vekur fækkun innlagna á Vog á sama tíma og eftirspurn eftir meðferð er mikil og fólk bíður eftir þjónustu. Þegar einstaklingur með vímuefnaröskun er tilbúinn að leita sér aðstoðar getur tíminn skipt sköpum. Töf eða rof á þjónustu getur haft alvarlegar félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar.

Félagsráðgjafar starfa víða með fólki sem glímir við vímuefnaröskun og þekkja vel hvernig rof í einni þjónustu getur haft keðjuverkandi áhrif annars staðar í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Afleiðingarnar geta meðal annars verið versnandi heilsa, félagsleg einangrun, atvinnumissir, húsnæðisóöryggi og aukið álag á fjölskyldur og aðstandendur.

Fagráðið kallar eftir tafarlausum aðgerðum til að tryggja:

  • að nauðsynleg meðferðarþjónusta skerðist ekki vegna ágreinings eða óvissu í rekstri,
  • stöðu þeirra sem þegar bíða eftir meðferð og þeirra sem standa hvað höllustum fæti,
  • skýrar upplýsingar um hvernig samfella og öryggi þjónustunnar verði tryggð,
  • að hagsmunir þjónustunotenda, faglegt öryggi og gæði þjónustunnar séu sett í forgang.

„Fólk sem glímir við vímuefnaröskun getur ekki beðið eftir því að deilur innan kerfisins leysist. Þegar einstaklingur er tilbúinn að þiggja aðstoð verður þjónustan að vera til staðar.“

Fagráðið undirstrikar að það sé sameiginleg ábyrgð þeirra sem reka, fjármagna og skipuleggja meðferðarþjónustu að tryggja samfellu hennar.

Þjónustunotendur mega ekki bera kostnaðinn af ágreiningi innan kerfisins.

Ályktunin er lögð fram fyrir hönd Fagráðs Félagsráðgjafafélags Íslands um áfengis- og annan vímuefnavanda af Erlu Björgu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa og lektor við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands.

Sjá ályktunina hér; Ályktun fagdeildar til SÁÁ 22.9.2026