
Vinnueftirlitið hefur sett af stað fræðsluherferð gegn einelti á vinnustöðum í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis. Markmiðið er að efla vitund um einelti, stuðla að heilbrigðum samskiptum og hvetja vinnustaði til að grípa snemma inn í neikvæð samskipti.
Herferðin er sett af stað í tilefni af degi gegn einelti, 8. nóvember, og ber yfirskriftina „Tökum höndum saman gegn einelti á vinnustöðum“.
Í nýju fræðslumyndbandi er fjallað um birtingarmyndir eineltis og hvernig skipulag, stjórnun og samskipti á vinnustöðum geta haft áhrif á þróun þess. Sérstök áhersla er lögð á forvarnir og mikilvægi þess að bregðast við áður en samskiptavandi þróast í einelti.
Á vef Vinnueftirlitsins er að finna fræðslumyndband, hagnýtan gátlista fyrir vinnustaði, grein um einelti og fræðslukönnun þar sem starfsfólk getur metið þekkingu sína á einelti, áreitni og ofbeldi.
Félagsráðgjafafélag Íslands hvetur félagsráðgjafa, stjórnendur og trúnaðarmenn til að kynna sér efnið og nýta það til að efla öryggi, vellíðan og heilbrigða vinnustaðamenningu.
