
Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, og María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri FÍ, hafa ritað greinina „Þegar tengsl geta skipt sköpum – félagsráðgjöf, geðrækt og forvarnir“ í tilefni Guls september. Þar beina þær sjónum að mikilvægu hlutverki félagsráðgjafa í geðrækt og forvörnum og þeirri sérstöðu fagsins að sjá manneskjuna í samhengi við tengsl hennar, aðstæður og samfélag.
Í greininni er bent á að boðskapur Guls september – að taka eftir, spyrja, hlusta og vera til staðar – snerti sjálfan kjarna félagsráðgjafar.
„Félagsráðgjafar vinna ekki aðeins með vandann sem blasir við hverju sinni heldur manneskjuna, tengsl hennar, aðstæður og samfélagið í kringum hana,“ segir meðal annars í greininni.
Þar er lögð áhersla á að vanlíðan verði sjaldnast til í tómarúmi. Fjölskylduaðstæður, félagsleg tengsl, fjárhagur, húsnæði, heilsa, skóli, vinna og aðgengi að þjónustu geti allt haft áhrif á líðan fólks. Heildarsýn félagsráðgjafar sé því sérstaklega mikilvæg þegar kemur að geðrækt, snemmtækum stuðningi og forvörnum.
Tengsl eru faglegt verkfæri
Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi tengsla og trausts í félagsráðgjöf. Traust samband getur skapað rými fyrir fólk til að segja frá því sem erfitt er og fordómalaus hlustun er ekki aðeins mannleg umhyggja heldur mikilvægt faglegt verkfæri félagsráðgjafans.
Í greininni segir:
„Það er styrkur félagsráðgjafar: að sjá ekki aðeins vandann – heldur manneskjuna í heild og það samfélag sem hún tilheyrir.“
Höfundar tengja þessa nálgun jafnframt við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Félagsráðgjafar séu sérstaklega vel í stakk búnir til að halda utan um flókin mál þar sem margir þjónustuaðilar koma að, enda byggi menntun þeirra og fagleg nálgun meðal annars á heildarsýn, fjölskyldu- og tengslavinnu, réttindum fólks og þverfaglegu samstarfi.
„Hvernig hefur þú það – í alvöru?“
Gulur september og félagsráðgjöf eiga þannig sterkan sameiginlegan kjarna: að grípa snemma inn í, styrkja tengsl, draga úr einangrun og tryggja að fólk fái stuðning áður en vandinn verður yfirþyrmandi.
Greininni lýkur á einfaldri en mikilvægri áminningu um að við getum öll tekið eftir, spurt og hlustað:
„Stundum hefst mikilvægasta samtalið á einfaldri spurningu: Hvernig hefur þú það – í alvöru? Og þá skiptir mestu að vera tilbúin að hlusta á svarið.“
Grein Steinunnar Bergmann og Maríu Bjarkar Ingvadóttur er rituð í tilefni Guls september, vitundarvakningar um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.
Greinina í heild má lesa hér; https://www.visir.is/g/20262933283d/thegar-tengsl-geta-skipt-skopum
