
Stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands (FÍ) lýsir þungum áhyggjum af hópuppsögn hjá
Hafnarfjarðarbæ 29. október síðastliðinn, þegar 23 starfsmönnum var sagt upp vegna
umfangsmikilla hagræðingar- og skipulagsbreytinga. Uppsagnir ná til ólíkra sviða
sveitarfélagsins og hafa áhrif á stjórnendur, sérfræðinga, ráðgjafa og starfsfólk í
stoðþjónustu.
Fjórir félagsráðgjafar eru meðal þeirra sem fengu uppsagnarbréf, tveir deildarstjórar og
tveir sérfræðingar, en tveimur þeirra hefur verið boðið annað starf. Þrjú þessara starfa
tengjast verkefnum sem ríkið hefur fjármagnað, einkum samræmdri móttöku flóttafólks
og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Framkvæmd uppsagnanna óásættanleg
Stjórn FÍ gerir alvarlegar athugasemdir við framkvæmd uppsagnanna. Samkvæmt
upplýsingum frá félagsfólki voru þrír félagsráðgjafar boðaðir með rúmlega hálftíma
fyrirvara á tíu mínútna fund með sviðsstjóra og fulltrúa mannauðssviðs þar sem þeim var
tilkynnt um uppsögn. Þeim var ekki boðið að hafa trúnaðarmann eða fulltrúa
stéttarfélagsins með sér. Fjórði félagsráðgjafinn, sem er í veikindaleyfi, fékk skriflega
uppsögn um tveimur og hálfri klukkustund eftir að starfsfólki á sama sviði hafði verið
tilkynnt um uppsagnir.
Stjórn FÍ telur þessa framkvæmd óásættanlega og ekki í samræmi við þá virðingu,
nærgætni og fagmennsku sem gera verður kröfu um af opinberum vinnuveitanda.
Uppsögn er íþyngjandi ákvörðun sem hefur víðtæk áhrif á líf og afkomu fólks. Starfsfólk á
rétt á vandaðri málsmeðferð, skýrum upplýsingum og raunhæfu svigrúmi til að leita
stuðnings og ráðgjafar. FÍ kallar eftir skýringum á því hvaða verklagsreglum var fylgt við
framkvæmd uppsagnanna.
Áhrif á börn og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu
Stjórn FÍ gerir sér grein fyrir ábyrgð sveitarfélaga á sjálfbærum rekstri. Fjárhagsleg
hagræðing má þó ekki veikja grunnstoðir velferðarþjónustunnar eða skerða aðgengi
þeirra sem mest þurfa á stuðningi að halda. Sérstakar áhyggjur vekur að uppsagnirnar ná
til starfa sem tengjast þjónustu við börn, efnalitlar fjölskyldur og fólk af erlendum
uppruna. Nýlegar upplýsingar um fátækt barna á Íslandi sýna að þúsundir barna búa við
erfiðar fjárhagslegar aðstæður. Á sama tíma hafa stjórnvöld lagt áherslu á samstillt átak
gegn fátækt barna og eflingu snemmtæks stuðnings.
Það skýtur skökku við að á sama tíma og kallað er eftir öflugri forvörnum og
aðgerðum gegn fátækt barna sé verið að fækka sérfræðingum sem gegna
lykilhlutverki í að greina félagslegan vanda, tryggja réttindi og styðja fjölskyldur í
viðkvæmri stöðu. Félagsráðgjafar gegna mikilvægu hlutverki í að tengja saman
þjónustukerfi og koma í veg fyrir að börn og fjölskyldur falli milli kerfa. Sú sérþekking
verður ekki sjálfkrafa leyst af hólmi með tilfærslu verkefna eða einföldun skipurits.
Ábyrgð sveitarfélagsins á áframhaldandi þjónustu
Hafnarfjarðarbær hefur lýst því yfir að lögbundinni þjónustu verði áfram sinnt af ráðgjöfum
með sértæka þekkingu. FÍ telur nauðsynlegt að bæjaryfirvöld geri grein fyrir því hvernig
það verði tryggt, hverjir taki við verkefnum þeirra sem missa störf sín og hvort áhrif
breytinganna á þjónustunotendur og starfsfólk hafi verið metin. Félagsráðgjöf er
lögvernduð heilbrigðisstarfsgrein og sérþekking félagsráðgjafa á félagslegum aðstæðum,
fjölskyldukerfum, réttindum einstaklinga og samþættingu þjónustu er grundvallarþáttur í
heildstæðri velferðarþjónustu.
Það að sveitarfélag uppfylli lögbundnar lágmarksskyldur tryggir ekki eitt og sér að
þjónustan sé nægilega öflug, snemmtæk eða í samræmi við raunverulegar þarfir
þeirra sem á henni þurfa að halda. Stjórn FÍ kallar eftir gagnsæi um forsendur og
framkvæmd uppsagnanna, mati á afleiðingum þeirra og virku samráði við fagfólk og
stéttarfélög.
Öflug velferðarþjónusta er ekki aðeins útgjaldaliður í rekstri sveitarfélags. Hún er
fjárfesting í velferð íbúanna, forvörnum og framtíð samfélagsins.
Stjórn FÍ lýsir jafnframt yfir fullum stuðningi við þá félagsráðgjafa sem uppsagnirnar snerta
og leggur áherslu á að réttindi þeirra og mannleg reisn verði virt í hvívetna
