
Formenn 12 fag-og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu benda í grein sem birtist á visir.is, á mikilvægi þess að þeir sem hafa tekið að sér hlutverk formanna, stjórnarmanna og trúnaðarmanna á vinnustöðum fyrir fag-og stéttarfélög, njóti raunverulegrar verndar, ekki bara á tyllidögum, heldur í framkvæmd og reynd. Þeir benda á að það þurfi að vera ljóst að gagnrýni, fagleg ábending og opin umræða sé ekki ástæða til refsinga, heldur forsenda umbóta.
Þá segir orðrétt „Ef við viljum betri heilbrigðisþjónustu verðum við að tryggja að þeir sem tala fyrir hönd hennar geti gert það án ótta. Það er ekki aðeins réttlætismál gagnvart starfsfólki, það er grundvallarforsenda þess að samfélagið allt njóti góðs af.“
Greinina í heild má lesa hér ; Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana – Vísir
