Fréttir

Nýtt tímarit félagsráðgjafa gefið út í dag,19.júní

By júní 19, 2026No Comments

Við fögnum í ár tvöföldum tímamótum í útgáfu Tímarits félagsráðgjafa, þetta er 20.árgangur þess en jafnframt höfum við opnað nýtt hljóð-og myndver í Borgartúni 27. Þar eru tekin upp viðtöl við greinahöfunda og er hver grein tímaritsins tengd áfram með QR-kóða sem leiðir lesandann í viðtal úr hljóðverinu. Þetta tölublað er því ekki aðeins safn greina heldur vettvangur tengsla og samtals. Með þessu móti tengjum við saman tímaritið, Félagsráðgjafahlaðvarpið, heimasíðu FÍ, þar sem allar greinar eru aðgengilegar og samfélagsmiðlana Facebook og Instagram þar sem birtast stuttar klippur úr viðtölunum. Þessir  miðlar allir gegna lykilhlutverki í að efla sýnileika félagsráðgjafar og skapa stærri vettvang fyrir faglega umræðu, nýjar hugmyndir og kynningu á störfum felagsráðgjafa.  Tímaritið er 76 blaðsíður að stærð, 34 greinar, bæði almennar, af vettvangi, frá félaginu auk ávarpa og viðtala en síðast en ekki síst er að finna þar þrjár afar fróðlegar ritrýndar greinar.  Forsíðuna málaði Guðrún Marinósdóttir, félagsráðgjafi, leikkona og listmálari og kallar hún myndina „Von og samvinna“. Tímaritið verður sent öllu félagsfólki FÍ.