
Alþingi samþykkti 23. nóvember ný heildarlög um barnavernd sem taka við af barnaverndarlögum nr. 80/2002. Breytingarnar marka mikilvæg tímamót í þjónustu við börn og fjölskyldur og hafa víðtæka þýðingu fyrir störf félagsráðgjafa.
Helstu breytingar:
Frá lagasetningu til framkvæmdar
Félagsráðgjafar gegna lykilhlutverki við framkvæmd barnaverndarlaga, allt frá snemmtækum stuðningi, könnun mála og faglegu mati til meðferðar, eftirfylgni og samþættingar þjónustu.
Nýju lögin kalla á vandaða innleiðingu í samspili við farsældarlögin. Tryggja þarf að aukin réttindi barna og skýrari kröfur til málsmeðferðar skili sér í raunverulegum umbótum fyrir börn og fjölskyldur.
Í ljósi yfirstandandi niðurskurðar og uppsagna í velferðarþjónustu sveitarfélaga er sérstaklega mikilvægt að horfa til þess hvernig stjórnvöld hyggjast tryggja:
– Nægilega mönnun og viðráðanlegt málamagn.
– Faglegt sjálfstæði og svigrúm til faglegs mats.
– Aðgengi að viðeigandi stuðnings- og meðferðarúrræðum.
– Faghandleiðslu, símenntun og sálrænt öryggi starfsfólks.
– Fjármagn til snemmtækrar íhlutunar og fyrirbyggjandi félagsráðgjafar.
Réttindi barna verða ekki tryggð með lagasetningu einni saman. Þau verða að veruleika í gegnum störf fagfólks sem hefur þekkingu, tíma, úrræði og starfsumhverfi til að sinna þeirri ábyrgð sem því er falin.
Félagsráðgjafafélag Íslands telur mikilvægt að fagstéttin hafi virka aðkomu að innleiðingu laganna og mati á áhrifum þeirra.
Heimild: [Samantekt Alþingis um lagabreytingarnar](https://www.althingi.is/…/samantektir-um-thingmal/…)
Höfundur: María Björk Ingvadóttir, framkv.stjóri FÍ
