Viðburðir

Málþing fagdeildar félagsráðgjafa fjölmenningar haldið 19.nóvember

By október 26, 2026No Comments

Heimurinn er hér: Farsæld barna með flóttabakgrunn

19. nóvember 2026  Kl. 8:30-11:40 að Grand hotel

skráning hér:  https://kto.is/6iae2u

Dagskrá:

8:30 Skráning og morgunverður

8:55 Setning Steinunn Bergmann formaður Félagsráðgjafafélags Íslands

9:00 Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu

Kortlagning úrræða Eystrasaltsríkjanna – áfallamiðuð nálgun í þjónustu við börn með flóttabakgrunn

9:20 Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældarþjónustu barna og Vigdís Elfa Jónsdóttir, málstjóri farsældar hjá Akraneskaupstað

Farsæld frá fyrsta degi – samþætt móttaka barna með flóttabakgrunn á Akranesi

9:40 Kristín Björk Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu

Heillaspor: Til náms og farsældar: Innleiðing tengsla- og áfallamiðaðri nálgun í skóla- og frístundarstarfi

10:00 Hlé

10:10 Auður Ósk Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og lektor við Félagsráðgjafadeild HÍ. Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og eigandi Tengslamat ehf

Tengslasaga mæðra frá V-Afríku sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi

10:30 Fahim Kooshook frístundatengill og Ragnar Harðarsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg

Móttaka barna með flóttabakgrunn í grunnskólum og frístundastarfi og hópastarf til að efla og styðja við þátttöku og mætingu í skóla

10:50 Karen Rún Helgadóttir og Sidiq Muhanat Abdiraxman starfsfólk Flotans, fljótandi félagsmiðstöðvar hjá Reykjavíkurborg

Þar sem börnin eru: Reynsla Flotans af starfi með börnum af erlendum uppruna

11:10 Pallborð

11:40 Lok

 

Fundarstjóri: María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri Félagsráðgjafafélags Íslands

Viðburðinum verður einnig streymt – ekki er þörf á skráningu í streymi.