Skip to main content
Fréttir

Launahækkanir samkvæmt kjarasamningum komu til útborgunar í maí

By maí 5, 2026No Comments

Félagsráðgjafafélag Íslands gerði kjarasamninga við ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga í lok árs 2024 og í janúar 2025 var skrifað undir samning við Reykjavíkurborg. Allir samningarnir gilda til 31. mars 2028. Samkvæmt samningunum voru hækkanir á launatöflum hjá opinberum starfsmönnum 1. apríl sl. 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr. sem kom til útborgunar 1. maí.

Hækkanir á almennum markaði

Aðildarfélög Bandalags háskólamanna standa sameiginlega að samningi við Samtök atvinnulífsins (SA).  Ekki er samið um launalið í þessum samningum heldur aðeins um réttindi og skyldur starfsmannsins, en laun fara eftir því sem um semst á markaði.  Hver og einn þarf því að semja um laun og launakjör sín í ráðningarsamningi og fyrirkomulag hækkunar á launum. Almenn hækkun samkvæmt samningum SA var 1. janúar sl. 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.

Félagsráðgjafar eru hvattir til að kynna sér áhrif hækkana á eigin kjör.