Fréttir

Fjölgun opinberra starfa fylgir aukinni þjónustuþörf – aðeins 4% fjölgun miðað við íbúafjölda

By september 24, 2026No Comments

Ný samantekt BHM um þróun stöðugilda hjá ríkinu sýnir að fjölgun ríkisstarfa á síðustu árum hefur fyrst og fremst orðið þar sem þjónustuþörf hefur aukist. Á árunum 2019–2025 fjölgaði stöðugildum hjá ríkinu um 16%, en þegar tekið er tillit til rúmlega 11% fjölgunar landsmanna nemur fjölgunin aðeins um 4% miðað við íbúafjölda.

Langstærstur hluti fjölgunarinnar hefur orðið í heilbrigðisþjónustu. Af hverjum 100 nýjum stöðugildum hjá ríkinu eru 72 í heilbrigðisþjónustu, 11 í öryggisþjónustu, 10 í kennslu og aðeins sjö í öðrum störfum ríkisins. Heilbrigðisþjónusta, öryggisþjónusta og kennsla skýra þannig 93% allrar fjölgunarinnar.

Stöðugildum í heilbrigðisþjónustu fjölgaði um 38% á tímabilinu og um 31% í öryggisþjónustu, en í öðrum störfum ríkisins var fjölgunin aðeins 2%. (Þetta kemur skýrt fram í samanburðarmyndum BHM á bls. 2 í minnisblaðinu).

Öldrun þjóðarinnar stór skýringarþáttur

BHM bendir sérstaklega á lýðfræðilega þróun. Frá árinu 2019 hefur fólki á aldrinum 70–79 ára fjölgað um 35%, meira en í nokkrum öðrum aldurshópi. Með hækkandi aldri þjóðarinnar eykst þörf fyrir heilbrigðis- og velferðarþjónustu og þar með þörfin fyrir starfsfólk.

Hluti fjölgunarinnar skýrist einnig af því að ríkið hefur tekið við verkefnum í öldrunarþjónustu frá sveitarfélögum. Þar er því ekki alltaf um ný störf að ræða heldur störf sem hafa færst á milli þjónustuveitenda. Þá hefur launuðum námsstöðum í heilbrigðisþjónustu einnig fjölgað.

Fjölgunin mest í heimsfaraldrinum

Stöðugildum fjölgaði mest árin 2021 og 2022. Á sama tíma og heimsfaraldurinn hafði mikil áhrif á heilbrigðisþjónustuna var vinnuvikan stytt úr 40 í 36 stundir. Til að tryggja sólarhringsþjónustu þurfti því fleira starfsfólk á vaktir. Stöðugildum í vaktavinnu fjölgaði um 28% samanborið við 13% í dagvinnu. Síðustu ár hefur hins vegar hægt verulega á fjölguninni og hefur hún verið um 1–2% á ári.

Þjónustuþörfin vex með samfélaginu

Meginniðurstaða BHM er því að tölur um fjölgun ríkisstarfa þurfi að skoða í samhengi við fólksfjölgun, öldrun þjóðarinnar og aukna þjónustuþörf. Þegar fjölgun landsmanna er tekin með í reikninginn hefur stöðugildum hjá ríkinu aðeins fjölgað um 4% frá 2019 til 2025.

BHM bendir jafnframt á að þegar íbúum fjölgar og þjóðin eldist megi ætla að verkefnum á hvern starfsmann hafi fjölgað og álag aukist, ekki síst í heilbrigðisþjónustu.

„Störfunum hefur fjölgað þar sem þörfin hefur aukist,“ er kjarninn í niðurstöðu BHM. Samtökin telja að þróunin muni líklega halda áfram, sérstaklega vegna öldrunar þjóðarinnar.

Sjá nánar;

Minnisblað fjölgun stöðugilda hjá ríkinu 2019-2025