
Félagsráðgjafafélag Íslands fagnar því að félagsráðgjafar gegni áberandi hlutverki í nýskipaðri stjórn Landspítala. Sérstaklega vekur athygli að Regína Ásvaldsdóttir, félagsráðgjafi, hefur verið skipuð formaður stjórnar, en Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, félagsráðgjafi, hefur verið skipuð varamaður í stjórn. Skipan þeirra endurspeglar mikilvægt framlag félagsráðgjafar til stefnumótunar, stjórnunar og þróunar heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Auk Regínu eiga sæti í stjórn Birna Einarsdóttir, varaformaður, Anna Sigríður Íslind, Thor Aspelund og Guðjón Hauksson. Varamenn eru Óskar Reykdalsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir.
Regína Ásvaldsdóttir er félagsráðgjafi að mennt og með meistaragráðu í rekstrarhagfræði með áherslu á breytingar og nýsköpun. Hún hefur áratuga reynslu af stjórnunarstörfum í opinberri þjónustu, meðal annars sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og bæjarstjóri á Akranesi. Þá hefur hún leitt umfangsmikil verkefni á sviði velferðarþjónustu, þjónustuþróunar og samfélagsábyrgðar og starfar nú sem verkefnastjóri verkefnisins Gott að eldast. Reynsla hennar af samþættingu þjónustu, stefnumótun og stjórnun stórra þjónustukerfa er afar verðmæt fyrir Landspítala á tímum mikilla breytinga og þróunar.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir er félagsráðgjafi og prófessor emeritus í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Hún lauk meistara- og doktorsnámi í stjórnsýslufræðum frá London School of Economics and Political Science og hefur um árabil verið í fararbroddi rannsókna á íslensku heilbrigðiskerfi. Rannsóknir hennar hafa me
ðal annars beinst að stefnumótun og stjórnun heilbrigðisþjónustu, þróun heilsugæslunnar, sameiningu sjúkrahúsa og stjórnsýslu heilbrigðismála. Hún hefur jafnframt gegnt stjórnunarstörfum í öldrunarþjónustu Reykjavíkurborgar og starfað sem ráðgjafi fyrir stjórnvöld og alþjóðastofnanir.
Skipun tveggja félagsráðgjafa í stjórn Landspítala undirstrikar þá fjölbreyttu þekkingu sem félagsráðgjafar búa yfir. Menntun þeirra byggir á heildarsýn á einstaklinginn, fjölskylduna og samfélagið, en jafnframt á þekkingu á skipulagi þjónustukerfa, samvinnu þvert á faggreinar, stjórnun, stefnumótun og réttindum notenda þjónustu. Sú sýn er mikilvæg við stjórnun og þróun nútíma heilbrigðisþjónustu þar sem sífellt meiri áhersla er lögð á samþætta, notendamiðaða og sjálfbæra þjónustu.
Stjórn Landspítala gegnir lykilhlutverki við að marka langtímastefnu spítalans í samstarfi við forstjóra, yfirfara starfs- og fjárhagsáætlanir og leggja sjálfstætt mat á markmið og árangur stofnunarinnar. Það er því ánægjulegt að reynsla og sérþekking félagsráðgjafa á sviði velferðar, heilbrigðismála og opinberrar stjórnsýslu fái svo mikilvægt vægi í starfi stjórnarinnar.
Félagsráðgjafafélag Íslands óskar Regínu Ásvaldsdóttur, Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur og allri nýrri stjórn Landspítala innilega til hamingju með skipunina og velfarnaðar í því mikilvæga hlutverki að leiða áfram þróun stærstu heilbrigðisstofnunar landsins.
*Regína Ásvaldsdóttir er næsti viðmælandi Maríu Bjarkar í Félagsráðgjafahlaðvarpinu.
