Skip to main content
Fréttir

Ertu nokkuð að missa af Félagsráðgjafaþinginu ?

By febrúar 16, 2026No Comments
Tengsl, ofbeldi, fíkn, gervigreind og öryggi barna eru í brennidepli á þingi félagsráðgjafa sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica 20.febrúar 
Þar verða m.a. kynntar nýjar rannsóknir og verkefni sem varpa ljósi á stöðu viðkvæmra hópa, öryggi fagfólks og framtíð velferðarþjónustu á Íslandi. Ofbeldi í garð félagsráðgjafa er raunveruleg og vaxandi ógn. Börn lifa í skugga fíknar og kerfið tekst á við flókin siðferðileg álitaefni um trúnað þegar líf og heilsa eru í húfi.
Þetta eru meðal þeirra nærri 40 fyrirlestra sem í boði eru, þar sem fagfólk rýnir í stöðu viðkvæmustu hópa samfélagsins og öryggi þeirra sem starfa við að verja þá.
Alþjóðlegt lykilerindi um framtíð velferðar
Helle Øbo, framkvæmdastjóri AskovFonden og stofnandi RELATION.DK, flytur lykilerindið um framtíð velferðar og hvernig færa megi velferðarkerfi frá kerfislægri nálgun í tengslamiðaða velferð með áherslu á mannlega nálgun og samfélagslega ábyrgð. “From system welfare to relational welfare”.
Ofbeldi gegn félagsráðgjöfum – umfang vandans afhjúpað
Kynntar verða nýjar niðurstöður landskönnunar um andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn félagsráðgjöfum, áhrif þess á starfsöryggi og tillögur að aðgerðum.
Hvenær rjúfum við trúnað?
Álitamál um þagnarskyldu þegar upplýsingar geta varðað líf og heilsu – lagaleg og siðferðileg mörk í heilbrigðisþjónustu.
Ofbeldi og öryggi barna – ný viðbrögð
Kynnt verður þróunarverkefni um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna, auk nýrra rannsókna á umsáturseinelti og áföllum.
Vímuefnaröskun, börn í ábyrgðarhlutverkum og bataauður
Rannsóknir á stöðu barna og fjölskyldna í skugga fíknivanda.
Flóttafólk og fagþreyta fagfólks
Nýjar rannsóknir á stöðu mæðra á flótta og áfallatengdri kulnun þeirra sem starfa með flóttafólki.
Gervigreind mætir félagsráðgjöf
Hvernig má nýta gervigreind á ábyrgan hátt í félagsráðgjöf? Fjallað um tækifæri, siðferðileg mörk og faglega ábyrgð.
Auk þess  verður fjallað um stöðu fósturforeldra og umönnunarálag, skólafélagsráðgjöf og álag í starfi með flóttafólki. Einnig verður kynnt rannsókn á upplifun foreldra trans barna af þjónustu á Íslandi, starfsemi Bergsins, lágþröskuldaúrræðis fyrir ungmenni á aldrinum 12–25 ára sem leggur áherslu á tengsl og snemmtækan stuðning.
Félagsráðgjafaþing 2026 endurspeglar þær áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir – þar sem öryggi barna, staða jaðarsettra hópa og vernd fagfólks eru í brennidepli.