Skip to main content
Fréttir

BHM varar við aðhaldsstefnu án greininga í fjármálaáætlun ríkisins

By maí 5, 2026No Comments

BHM hefur birt umsögn um fjármálaáætlun ríkisins 2027–2031 þar sem varað er við aðhaldsstefnu sem ekki er studd nægilegri greiningu á áhrifum á þjónustu, starfsfólk og lykilinnviði samfélagsins.

Í umsögninni er meðal annars bent á að:

  • aðhald án greiningar geti grafið undan gæðum opinberrar þjónustu,
  • óljósar forsendur veiki trúverðugleika áætlunarinnar,
  • og að fjárfesting í mannauði og innviðum sé lykilforsenda traustra ríkisfjármála til lengri tíma.

Fyrir félagsráðgjafa skiptir þetta máli. Aðhald án skýrrar greiningar getur haft bein áhrif á gæði velferðarþjónustu, aukið álag á fagfólk og veikt þjónustu við viðkvæma hópa. Traust og fagleg þjónusta byggir á stöðugleika, nægilegum mannafla og markvissri uppbyggingu.Félagsráðgjafafélag Íslands hvetur félagsmenn til að kynna sér umsögnina og nýta hana í faglegri umræðu og hagsmunagæslu.

👉 Umsögnina má lesa hér:

BHM varar við aðhaldi án greiningar í fjármálaáætlun 2027–2031 – BHM