Viðburðir

Aðventufundur síungra félagsráðgjafa 10.desember

By nóvember 25, 2026No Comments

Félagsráðgjafafélag Íslands býður síungum félagsráðgjöfum til notalegrar samverustundar á aðventunni fimmtudaginn 10. desember í Borgartún 27. 2.hæð.

Viðburðurinn er einkum ætlaður þeim sem að mestu eða öllu leyti hafa látið af störfum við félagsráðgjöf, en að sjálfsögðu eru öll þau sem náð hafa 65 ára aldri hjartanlega velkomin, óháð starfshlutfalli eða starfsstöðu.

Okkur þykir mikilvægt að rækta tengslin við þau sem hafa lagt sitt af mörkum til þróunar fagsins í gegnum árin. Aðventan er kærkomið tækifæri til að hittast, spjalla, rifja upp góðar minningar og njóta ljúffengra veitinga í góðum félagsskap.

Þau sem ekki hafa skráð sig eru vinsamlega beðin um að senda póst á felagsradgjof@felagsradgjof.is  fyrir 8.des n.k.

Hvenær: fimmtudaginn 10. desember 2026, kl. 15:00–17:00.

Hvar: húsakynni FÍ, Borgartúni 27, 2. hæð.

Við hlökkum til að eiga með ykkur hlýja og notalega aðventustund.

Með kærri aðventukveðju, Steinunn, formaður FÍ og María Björk, framkvæmdastjóri FÍ