Skip to main content
Viðburðir

Aðalfundur FÍ, 29.apríl kl.14.00 á teams og í Borgartúni 27.

By mars 18, 2025No Comments
Stjórn og framkvæmdastjóri FÍ 2025

Stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 29.apríl n.k. kl. 14.00-16.00 í Borgartúni 27, 2.hæð og á teams.

Dagskrá aðalfundar skv. 6. gr. laga félagsins:

  1. Fundur settur.
  2. Skipan fundarstjóra og fundarritara.
  3. Staðfest lögmæti fundarins.
  4. Skýrsla stjórnar um starf félagsins á liðnu ári.
  5. Skýrsla stjórnar um reikninga félagsins, vinnudeilusjóð og nefndir eftir atvikum.
  6. Reikningar félagsins skulu endurskoðaðir af löggildum endurskoðanda og lagðir fram til samþykktar á aðalfundi.
  7. Stéttarfélagsgjald og fagfélagsgjald ákveðið til eins árs, svo og framlag/hlutfall stéttarfélagsgjalds í vinnudeilusjóð.
  8. Skýrslur fastanefnda.
  9. Tillögur um breytingar á lögum félagsins skal senda til stjórnar skriflega ásamt rökstuddri greinargerð, í síðasta lagi 1. febrúar ár hvert. Breytingartillaga skal birt orðrétt í fundarboði þess aðalfundar er ræðir hana. 2/3 hluta atkvæða þarf til breytinga á lögum.
  10. Stjórn félagsins. Fulltrúar í stjórn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Kosið er sérstaklega um formann félagsins til fjögurra ára í senn. Eigi færri en fimm af sjö stjórnarmeðlimum skulu vera með stéttarfélagsaðild.
  11. Tillögur og áætlanir um störf félagsins á yfirstandandi ári kynntar.
  12. Fjárhagsáætlun yfirstandandi árs lögð fram til samþykktar.
  13. Önnur mál.
  14. Fundi slitið.

FRAMBOÐ Í STJÓRN FÍ

Á aðalfundi FÍ 2025 verður kosið um þrjár stöður í stjórn FÍ. Þau sem vilja bjóða sig fram senda póst á felagsradgjof@felagsradgjof.is fyrir 15. apríl nk.

RAFRÆN KOSNING

Ef fleiri bjóða sig fram en auglýstar lausar stöður segja til um fer fram rafræn kosning frá hádegi 22. apríl til hádegis 25. apríl 2025.

Kjörgengir og þeir sem hafa atkvæðarétt er félagsfólk FÍ með stéttarfélagsaðild eða fagaðild sem hafa staðið í skilum.

Mikilvægt er að allir sem ætla á aðalfund skrái sig með því að senda póst á netfangið felagsradgjof@felagsradgjof.is, hvort sem viðkomandi ætlar að vera á teams eða mæta í Borgartún 27.