Skip to main content
Fréttir

Niðurstöður vinnusmiðju FÍ kynntar 27.mars n.k.

By mars 20, 2026No Comments
Velferðarkerfi sem býður fagfólki upp á ómögulegar aðstæður getur ekki tryggt farsæld þeirra sem til þess leita.
Þetta er sá boðskapur sem vinnusmiðja Félagsráðgjafafélags Íslands sendi til stjórnvalda á Alþjóðadegi Félagsráðgjafar 17. mars, s.l. Rætt var um óhóflegt álag á fagstéttina, mikinn málafjölda, aukna skriffinnsku, flækjustig og skort á úrræðum. Niðurstöður umræðna sýna mikla samstöðu meðal félagsráðgjafa um hvað þurfi að breytast.
Boðað hefur verið til fundar á netinu næstkomandi föstudag, 27.mars kl. 12.00-13.00 þar sem helstu  niðurstöður vinnusmiðjunnar verða kynntar og boðið upp á umræður í lokin.