Í tilefni af alþjóða mannréttindadeginum verður Félagsráðgjafafélag Íslands í samstarfi við fagdeildir félagsráðgjafa í málefnum fatlaðra
og félagsráðgjafa í félagsþjónustu með morgunverðarfund föstudaginn 9. desember 2022 kl. 8:30 til 11:00 á Grand hótel Reykjavík.
Yfirskrift fundarins er Tækifæri fyrir öll.
Þar sem aðventan verður gengin í garð verður morgunverðurinn að þessu sinni með jólaívafi.