Fagdeild félagsráðgjafa í stjórnun verður stofnuð miðvikudaginn 9. október kl. 11:30.
Stofnfundurinn verður haldinn í húsnæði BHM, Borgartúni 6.
Dagskrá:
-
Aðdragandi að stofnun fagdeildar félagsráðgjafa í stjórnun
-
Starfsreglur deildarinnar
-
Umræður
-
Kosning stjórnar
Við hvetjum félagsráðgjafa sem starfa við stjórnun að taka tímann frá og ganga í fagdeildina. Hjá Félagsráðgjafafélagi Íslands eru nú níu fagdeildir og fimm landshlutadeildir. Markmið deildanna er að skapa vettvang til umræðu og skoðanaskipta, efla fræðslu á viðkomandi sviði og efla samskipti og samvinnu félagsráðgjafa.