Skip to main content
Fréttir

Skráning á Evrópuráðstefnu félagsráðgjafa í maí 2017

By maí 13, 2017No Comments

Kæru félagsráðgjafar!

Skráning er í fullum gangi á IFSW European Conference 2017 – Evrópuráðstefnu félagsráðgjafa, sem Félagsráðgjafafélagið skipuleggur í samstarfi við IFSW Europe dagana 28. til 30. maí 2017.

Ráðstefnan verður haldin í Hörpu og er undirbúningur hennar í fullum gangi.

Í byrjun sumars eru 500 þátttakendur skráðir, og þar af eru rúmlega 300 erlendir gestir.

Hefur stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands ákveðið að styrkja félagsmenn um kr. 15.000, þ.e.a.s. niðurgreiða þátttökugjaldið sem þessu nemur ef þeir skrá sig hér

Þátttökugjald er nú 59 þúsund krónur og styrkir Félagsráðgjafafélagið alla þá félagsmenn sem skrá sig fram til 5. maí en þá hækkar gjaldið í 82 þúsund krónur sem er almennt skráningargjald.

Við bendum félagsmönnum á að hægt er að sækja um styrk fyrir ráðstefnugjaldinu og ferðum ef þörf er á innanlands til Starfsþróunarseturs og/eða Starfsmenntasjóðs BHM en á tveggja ára tímabili öðlast félagsmenn sem greitt er í þessa sjóði fyrir alls kr. 470.000.
Frekari upplýsingar má finna hér.

Viltu finna dagskrá Evrópuráðstefnunnar? Hún er komin á heimasíðuna og er stútfull af áhugaverðum erindum og kynningum.

Dagskráin er hér.