Skip to main content
Viðburðir

Ofbeldi snertir allt samfélagið

By september 16, 2021október 22nd, 2021No Comments

Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ) stendur fyrir málþingi um ofbeldi þriðjudaginn 26. október 2021 kl. 10-16 á Hótel Natura, Nauthólsvegi en málþinginu verður einnig streymt. Málþingið er haldið í samstarfi við Félagsráðgjafardeild HÍ og fagdeildir FÍ í áfengis- og vímuefnamálum, barnavernd, félagsþjónustu, fræðslu- og skólafélagsráðgjöf, fjölmenningu, heilbrigðisþjónustu, málefnum fatlaðra og öldrunarmálum.

Dagskrá:
10.00-10.10 Setning málþings: Steinunn Bergmann formaður Félagsráðgjafafélags Íslands
10.10-10.20 Hverjir beita aldraða ofbeldi – Sigrún Ingvarsdóttir félagsráðgjafi og deildarstjóri hjá þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
10.20-10.30 Saman gegn ofbeldi – Jaðarsettir hópar – Kristín Þórðardóttir, félagsráðgjafi hjá þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
10.30-10.40 Samhæfingarmiðstöð um mansal – tilraunaverkefni í Bjarkarhlíð 2020-2021 – Ragna Guðbrandsdóttir félagsráðgjafi og verkefnastjóri Bjarkarhlíðar
10.40-10.50 Hvað eru hótanir og ofbeldi, hvar liggja mörkin og hvernig er brugðist við?“ – Þórdís Rúnarsdóttir félagsráðgjafi frá Sýslumannsembættinu
10.50-11.00  Aðstæður barna sem dvelja í neyðarathvarfi – Bergdís Ýr Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu
11.00- 11.15  Kaffihlé
11.15-11.25  Málefni barna af erlendum uppruna og heimilisofbeldismál hjá Barnavernd Reykjavíkur – Elísabet Gunnarsdóttir félagsráðgjafi hjá Barnavernd Reykjavíkur
11.25-11.35 Ofbeldi í grunnskóla, Hvað gerir skólafélagsráðgjafi – Guðbjörg Edda Hermannsdóttir skólafélagsráðgjafi hjá Grunnskólum Reykjavíkur
11.35-11.50 ART– betri samskipti – minnkar líkur á ofbeldishegðun – Katrín Þrastardóttir verkefnstjóri og fjölskyldu-ART ráðgjafi á Suðurlandi
11.50-12.05 Keep safe Gagnreynd hópmeðferð fyrir drengi á aldrinum 13-18 ára  sem eru með frávik í taugaþroska og hafa sýnt óviðeigandi kynferðislega hegðun – María Jónsdóttir félagsráðgjafi hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
12.05-13.00 Matarhlé
13.00 -13.45 Áhrif menningar á ofbeldi – rafrænt – Hanna Cinthio rannsakandi á sviði félagsráðgjafar með áherslu á heiðurstengt ofbeldi
13.45 -14.00 Samræða um ofbeldi: Karlar sem berja – Dr. Guðrún Kristinsdóttir félagsráðgjafi, prófessor emerita og Dr. Jón Ingvar Kjaran prófessor, bæði hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands
14.00-14.15 Heimilisfriður – kynning á úrræði fyrir gerendur í heimilisofbeldi – Andrés Ragnarsson sálfræðingur
14.15-14.30 Taktu Skrefið – úrræði fyrir einstaklinga með óviðeigandi og/eða skaðlega kynhegðun – Anna Kristín Newton sálfræðingur
14:30-14:45 Kaffihlé
14:45-15:00 Hugræn atferlismeðferð fyrir fjölskyldur sem að beita ofbeldi (AF-CBT) – Eva Sjöfn Helgadóttir sálfræðingur hjá Barnavernd Reykjavíkur
15.00-15.15  Hugvekja: Samfélag sem hlustar – Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur í Fríkirkjunni Hafnarfirði
15.15-16.00  Panellumræður með þátttöku fyrirlesara – stjórnandi Chien Tai Shill félagsráðgjafi

Uppselt er á viðburðinn og því lokað fyrir skráningu. Athugið að ekki þarf að skrá sig ef horft er á í streymi sem fram fer á facebooksíðu FÍ www.facebook.com/Felagsradgjafafelag