Skip to main content
Fréttir

Nýr framkvæmdastjóri FÍ tekinn til starfa

By september 19, 2024No Comments

María Björk Ingvadóttir, félagsráðgjafi tók við starfi framkvæmdastjóra félagsins um síðustu mánaðarmót en því starfi gegndi áður Sveindís Anna Jóhannsdóttir.

Steinunn Bergmann formaður FÍ, segir það mikinn feng að fá Maríu Björk til starfa á skrifstofu félagsins en hún hafi áralanga reynslu af starfi á vettvangi félagsráðgjafar auk starfa við fjölmiðla.

Verkefni vetrarins eru fjölbreytt, segir Steinunn, en nú standa yfir kjaraviðræður og unnið er að fræðsludagskrá í samstarfi við fagdeildir félagsins. Nokkrar breytingar urðu á stjórn félagsins á síðasta aðalfundi þegar þær Ásta Kristín Benediktsdóttir og Valgerður Halldórsdóttir tóku sæti í stjórninni en auk þeirra eru í stjórn þær Arndís Tómasdóttir, Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir, Hafdís Gerður Gísladóttir og Kristín Þórðardóttir.  Stjórn fundar mánaðarlega með formanni og framkvæmdastjóra félagsins.

Við hvetjum félagsráðgjafa til að hafa samband við skrifstofu félagsins hvort heldur er varðar fag- eða kjaramál. Hægt er að hringja í skrifstofusímann, 5955151 og senda tölvupóst á netfangið felagsradgjof@felagsradgjof.is

Skrifstofa Félagsráðgjafafélags Íslands er til húsa að Borgartúni 27, 2.hæð.