Skip to main content
Fréttir

Konur á vinnumarkaði – framfarir en kerfislægur munur enn til staðar

By mars 5, 2026No Comments

Ný greining BHM sýnir að þrátt fyrir aukna menntun og meiri þátttöku kvenna í atvinnulífi er kynjamunur í tekjum og starfsþróun enn verulegur. Háskólamenntaðar konur hafa að jafnaði svipaðar tekjur og karlar með stúdentspróf.

Stærstu þáttaskilin verða við fyrstu barneign. Tíu árum eftir fyrstu barneign er atvinnuþátttaka kvenna um 20% lægri en áður og tekjur þeirra um 36% lægri en tekjur karla. Svokölluð barnasekt skýrir stóran hluta þessa munar.

Samkvæmt rannsókn OECD hefur aukin atvinnuþátttaka kvenna verið einn mikilvægasti drifkraftur efnahagslegs vaxtar síðustu áratugi. Því gæti sterkari staða kvenna á vinnumarkaði skilað verulegum viðbótarávinningi til framtíðar.

Sterkari staða kvenna á vinnumarkaði er ekki aðeins jafnréttismál heldur einnig lykilatriði fyrir framleiðni og hagvöxt.

BHM kynnir niðurstöðurnar á opnum morgunverðarfundi 6. mars í Norræna húsinu, í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Allir velkomnir.

Hlekkur á streymi frá fundinum er hér; https://www.bhm.is/greinar/morgunverdarfundur-bhm-stada-maedra-a-vinnumarkadi