Skip to main content
Fréttir

Frá háskóla til verðmæta – hvernig styrkjum við tengslin sem vantar?

By apríl 10, 2026No Comments

Í nýjasta Hagkorni BHM kemur fram að hagvöxtur á Íslandi byggist í auknum mæli á fjölgun starfa fremur en aukinni verðmætasköpun á hverja vinnustund.

Á tímabilinu 2010 til 2024 hefur verðmætasköpun á mann vaxið hraðar hér en á hinum Norðurlöndunum, er minni en að meðaltali í OECD og mun hægari en í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það stendur Ísland hátt í samanburði; landsframleiðsla á mann er t.d. hærri en í Svíþjóð, Finnlandi og OECD.

Eftir kröftugan vöxt fram til 2023 hefur landsframleiðsla á mann dregist lítillega saman hér á landi – sem bendir til þess að hluti vaxtar hafi byggst á auknu vinnumagni fremur en varanlegri framleiðniaukningu.

Greining BHM sýnir að Ísland nýtir menntun og þekkingu verr en efni standa til. Tengsl háskóla og atvinnulífs eru veikari en á hinum Norðurlöndunum, nýsköpun skapar síður ný störf og fyrirtæki og hvatar á vinnumarkaði styðja ekki nægilega við sérhæfingu starfsfólks. Framleiðnivöxtur er að mestu takmarkaður við fáar greinar og sérfræðistörf sem umbreyta þekkingu í verðmæti eru of fá.

Niðurstaða greiningarinnar er skýr: Tækifæri eru til að nýta betur þekkingu og sérhæfingu á íslenskum vinnumarkaði. Með sterkari tengingu milli háskóla, fyrirtækja, nýsköpunar og vinnumarkaðar eru meiri líkur á að menntun skili sér í aukinni framleiðni og bættum lífskjörum til lengri tíma.

Farið verður nánar yfir niðurstöður Hagkorna og viðbrögð á morgunverðarfundi BHM sem haldinn verður 30. apríl í Norræna húsinu. 

Fundurinn er opinn öllum, og hvetur BHM félagsfólk aðildarfélaga og hagaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni.