Skip to main content
Fréttir

Félagsráðgjafaþing 19. febrúar 2016

By janúar 19, 2016september 8th, 2021No Comments

Félagsráðgjafaþing verður haldið föstudaginn 19. febrúar á Hilton Nordica Reykjavík. Yfirskriftin í ár er Félagsráðgjöf – þróun og gæði.

Aðalfyrirlesari er Beth Anderson, yfirmaður rannsókna hjá SCIE (Social Care Institute of Excellence), sem kynnir gæðaverkefni sem stofnunin vann með ungu fólki með það að markmiði að búa til gæðavísa í félagsþjónustu fyrir börn. Yfirskrift erindis hennar er Quality Social Care: Looked after Children – Supporting young people in accessing a quality service.

Að þingi loknu er móttaka á vegum Félagsráðgjafafélags Íslands þar sem Vísindanefnd félagsins úthlutar styrkjum úr B-hluta Vísindasjóðs fyrir árið 2016. Léttar veitingar eru í boði.

Skráning er hér auk allra upplýsinga um verð og greiðslumáta.

Dagskrána má finna hér.

Þingið er opið öllum!