Skip to main content
Fréttir

Félagsráðgjafaþing 16. febrúar 2018 – Félagsráðgjöf og mannréttindi

By október 24, 2017No Comments
Fimmta Félagsráðgjafaþingið verður haldið föstudaginn 16. febrúar 2018. Þingið verður líkt og undanfarin ár, haldið á Hótel Hilton Nordica og lýkur með glæsilegri móttöku í dagslok. Dagskrá hefst kl. 9 og lýkur kl. 16:40 en þá hefst móttaka í boði Félagsráðgjafafélags Íslands með mat og drykk.

Undirbúningsnefnd býður ykkur hjartanlega velkomin á okkar fimmta Félagsráðgjafaþing sem í ár hefur yfirskriftina félagsráðgjöf og mannréttindi sem er eitt grunngilda í öllu starfi félagsráðgjafa sem berjast gegn mannréttindabrotum hvar sem þau eiga sér stað eins og siðareglur félagsráðgjafa kveða á um.

Aðalfyrirlesari þingsins í ár er dr. Merlinda Weinberg sem er prófessor við Dalhousie University í Halifax og hefur hún skrifað um siðfræði í störfum félagsráðgjafa. Yfirskrift erindis hennar er Human Rights and Social Work Ethics in Bureaucratic Times.

Undirbúningsnefnd Félagsráðgjafaþings kynnir með gleði dagskrá þingsins í ár, sem hefst að vanda með ávarpi formanns Félagsráðgjafafélags Íslands, Maríu Rúnarsdóttur. Því næst ætlar María Reyndal, leikstjóri að segja frá tilurð verksins Sóley ræstitæknir sem var valið leikrit ársins 2017. Að lokum hlýðum við á erindi dr. Merlindu Weinberg, félagsráðgjafa um siðfræði í störfum félagsráðgjafa á tímum aukinnar skriffinsku. Að loknu kaffihléi hefjast málstofur en í ár barst undirbúningsnefnd mikill fjöldi útdrátta og er ánægjulegt hve margar málstofur eru þverfaglegar. 

Heildardagskrá Félagsráðgjafaþings 2018 má sjá hér.

Skráning er hafin á nýrri greiðslugátt félagsins hér fyrir neðan – athugið að nota EKKI Internet Explorer vafrann:

– Almennt þátttökugjald til 22. janúar er kr. 9.500

– Þátttökugjald fyrir nema og ellilífeyrisþega er kr. 6.500

– Þátttökugjald frá 23. janúar er kr. 12.500

Fyrir hönd undirbúningsnefndar, 

María Rúnarsdóttir, formaður