Stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 16:00-18:00 í Borgartúni 27 og á teams
Dagskrá aðalfundar skv. 6. gr. laga félagsins
1. Fundur settur.
2. Skipan fundarstjóra og fundarritara.
3. Staðfest lögmæti fundarins.
4. Skýrsla stjórnar um starf félagsins á liðnu ári.
5. Skýrsla stjórnar um reikninga félagsins, vinnudeilusjóð og nefndir eftir atvikum.
6. Reikningar félagsins skulu endurskoðaðir af löggildum endurskoðanda og lagðir fram til samþykktar á aðalfundi.
7. Stéttarfélagsgjald og fagfélagsgjald ákveðið til eins árs, svo og framlag/hlutfall stéttarfélagsgjalds í vinnudeilusjóð.
8. Skýrslur fastanefnda.
9. Lagabreytingar. Tillögur um breytingar á lögum félagsins skal senda til stjórnar skriflega ásamt rökstuddri greinargerð, í síðasta lagi 1. febrúar ár hvert. Breytingartillaga skal birt orðrétt í fundarboði þess aðalfundar er ræðir hana. 2/3 hluta atkvæða þarf til breytinga á lögum.
10. Stjórn félagsins. Fulltrúar í stjórn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Kosið er sérstaklega um formann félagsins til fjögurra ára í senn. Eigi færri en fimm af sjö stjórnarmeðlimum skulu vera með stéttarfélagsaðild.
11. Tillögur og áætlanir um störf félagsins á yfirstandandi ári kynntar.
12. Fjárhagsáætlun yfirstandandi árs lögð fram til samþykktar.
13. Önnur mál.
14. Fundi slitið.
FRAMBOÐ Í STJÓRN FÍ
Á aðalfundi FÍ 2026 verður kosið um þrjár stöður í stjórn FÍ. Þau sem vilja bjóða sig fram senda póst á felagsradgjof@
RAFRÆN KOSNING
Ef fleiri bjóða sig fram en auglýstar lausar stöður segja til, um fer fram rafræn kosning frá hádegi 21. apríl til hádegis 24. apríl 2026.
FRAMBOÐ Í SIÐANEFND
Á aðalfundi FÍ 2026 verður kosið um þrjár stöður í siðanefnd FÍ. Þau sem vilja bjóða sig fram senda póst á felagsradgjof@
FRAMBOÐ Í VÍSINDANEFND
Á aðalfundi FÍ 2026 verður kosið um tvær stöður í vísindanefnd FÍ. Þau sem vilja bjóða sig fram senda póst á felagsradgjof@
Kjörgeng og þau sem hafa atkvæðarétt er félagsfólk FÍ með stéttarfélagsaðild eða fag
Vinsamlegast skráið þátttöku fyrir kl. 12:00 þann 27. apríl á https://forms.gle/
