Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Félagsráðgjafafélags Íslands var haldinn í morgunn. Á fundinum skipti stjórn meðal annars með sér verkum:
- María Rúnarsdóttir er formaður.
- Steinunn Bergmann er varaformaður.
- Guðlaug M. Júlíusdóttir er ritari stjórnar.
- Berglind Ósk Filippíudóttir er gjaldkeri stjórnar og ritstjóri heimasíðu FÍ.
- Hervör Alma Árnardóttir er fulltrúi stjórnar í Vísindasjóði.
- Hildigunnur Árnadóttir er meðstjórnandi.
- Gunnlaug Thorlacius er meðstjórnandi.
Þau eru mörg verkefnin framundan hjá nýrri stjórn en starfsáætlun stjórnar er í vinnslu og verður kynnt félagsmönnum í maí.
Fundartími stjórnar er fyrsti fimmtudagur í mánuði frá kl. 14-16.