
Stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og Samtökin ’78 sameina krafta sína til að efla jafnrétti og öryggi hinsegin fólks á vinnumarkaði.
Félagsráðgjafafélag Íslands fagnar undirritun viljayfirlýsingar um aukið samstarf til stuðnings jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði. Með yfirlýsingunni, sem undirrituð var 7.ágúst s.l. af félags- og húsnæðismálaráðherra, fulltrúa dómsmálaráðherra og forystu Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands (KÍ), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Samtakanna ’78, er stigið mikilvægt skref í þágu réttlætis og öryggis fyrir hinsegin fólk á vinnumarkaði.
Félagsráðgjafafélagið styður þau markmið aðila um að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks, draga úr mismunun og stuðla að öruggum, inngildandi og fordómalausum vinnustöðum. Rannsóknir og reynsla sýna að þrátt fyrir lagaramma um jafna meðferð upplifir hinsegin fólk enn oftar mismunun og verri líðan, sérstaklega trans- og kynsegin hópurinn, og því er þörf á kerfisbundnum aðgerðum.
Aðgerðahópur sem stofnaður verður í kjölfar yfirlýsingarinnar mun leiða áframhaldandi fræðslu-, aðgerða- og rannsóknarvinnu. Hópurinn mun byggja starf sitt á rannsóknum á stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, reynslu og gögnum úr Hinsegin vottun Samtakanna ’78, og leiðbeiningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildandi vinnustaði.
Félagsráðgjafafélagið hvetur vinnustaði, stofnanir og stjórnvöld til samvinnu við framkvæmd aðgerða sem tryggja að allir njóti virðingar, öryggis og jafns tækifæris á vinnumarkaði.
Þeir sem undirrituðu yfirlýsinguna voru:
- Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrir hönd dómsmálaráðherra
- Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ)
- Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
- Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
- Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands (KÍ)
- Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins (SA)
- Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78
