Fréttir

Efla á fagstétt félagsráðgjafa á heimsvísu

By júlí 21, 2026No Comments

Fulltrúaráð alþjóðasamtaka félagsráðgjafa, IFWS,  samþykkti nýja stefnuyfirlýsingu þar sem IFSW og aðildarfélög þess skuldbinda sig til að berjast fyrir því að umönnun og stuðningur verði viðurkennd sem mannréttindi og almannagæði á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Að tryggja virka þátttöku þjónustuveitenda, þjónustunotenda og samfélaga við mótun umönnunar- og stuðningskerfa. Að efla kynjajafnrétti, mannsæmandi atvinnu, félagslegt réttlæti og vistfræðilega sjálfbærni sem grundvallarstoðir umönnunar- og stuðningskerfa. Einnig að styðja félagsráðgjafa í að byggja upp öflug tengslanet, faglegt samstarf og þekkingarmiðlun og loks að styrkja samstarf stjórnvalda, borgaralegs samfélags, samfélagsstofnana og frumbyggja til að skapa samþætt og sjálfbært umönnunar- og stuðningsvistkerfi.

Steinunn Bergmann, formaður FÍ og María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri, sóttu fulltrúaráðsfund Alþjóðasamtaka félagsráðgjafa (IFSW) sem haldinn var í Nairobi í Kenýa dagana 23.–24. júní, í aðdraganda heimsráðstefnu samtakanna. Fundurinn var jafnframt haldinn í fjarfundi og tóku fulltrúar frá 81 landi þátt.Steinunn Bergmann og María Björk Ingvadóttir sækja fundinn fyrir hönd FÍ

Fulltrúaráðsfundur IFSW er haldinn annað hvert ár og fer með æðsta vald samtakanna. Að þessu sinni var hann haldinn í aðdraganda sameiginlegrar heimsráðstefnu um félagsráðgjöf, menntun og félagslega þróun (Joint World Conference on Social Work, Education and Social Development) og gaf aðildarfélögum tækifæri til að fara yfir árangur Samtakanna, móta framtíðarstefnu þess og kjósa nýja forystu.

Eva P. Ponce de Leon frá Filippseyjum var kjörin forseti IFSW til næstu fjögurra ára. Jafnframt voru kjörnir forsetar og varaforsetar fyrir hverja heimsálfu. Eva Ponce de León sagði m.a. þegar hún tók við formennskunni; „Þessi ársfundur sýndi einstakan styrk Samtaka okkar. Í öllum umræðum sýndu meðlimir skuldbindingu sína, ekki aðeins við félagsráðgjöf, heldur einnig hver við annan. Ég býð  nýju aðildarfélögin okkar frá Belgíu, Benín, Sómalíu og Suður-Afríku innilega velkominí IFSW fjölskylduna. Innganga þeirra styrkir sameiginlega rödd okkar og minnir okkur á að Samtök okkar halda áfram að vaxa í gegnum samstöðu, fjölbreytni og sameiginlegan tilgang. Við kveðjumNaíróbí, tilbúin til að byggja upp Samtök sem hlusta, þróast og starfa fyrir félagsleg réttlæti, mannréttindi og sjálfbæra þróun.“

 

Á fundinum voru lagðar fram skýrslur forseta og framkvæmdastjóra samtakanna, farið yfir fjárhag og starfsemi heimsálfanna og störf fastanefnda IFSW kynnt. Nefndirnar sinna fjölbreyttum verkefnum, meðal annars á sviði mannréttinda, samstarfs við Sameinuðu þjóðirnar, málefna frumbyggja, félagsráðgjafarmenntunar og siðareglna. Með virkri þátttöku á vettvangi Sameinuðu þjóðanna stuðlar IFSW að auknum sýnileika og áhrifum félagsráðgjafar á alþjóðavísu.

Fundurinn veitti einstaka innsýn í fjölbreytt störf félagsráðgjafa víðs vegar um heiminn þar sem unnið er að eflingu mannréttinda, félagslegs réttlætis, jafnréttis og sjálfbærra samfélaga, auk áframhaldandi þróunar fagsins. Þá voru ræddar tillögur frá aðildarfélögum um bætt verklag innan samtakanna, endurskoðun siðareglna og leiðir til að stuðla að öruggu vinnuumhverfi félagsráðgjafa.

Fundurinn markaði jafnframt tímamót í sögu IFSW þar sem hann var í fyrsta sinn haldinn á þremur opinberum tungumálum samtakanna , ensku, frönsku og spænsku,  sem jók þátttöku og aðgengi aðildarfélaga. Mikil áhersla var lögð á lýðræðislega þátttöku, gagnsæi og áframhaldandi þróun samtakanna, með það að markmiði að styrkja IFSW enn frekar sem alþjóðlega rödd félagsráðgjafar og mannréttinda.

Næsta heimsráðstefna félagsráðgjafa, SWSD 2028, verður haldin í París í Frakklandi dagana 16.–19. júlí 2028. Ráðstefnan verður jafnframt tímamótaviðburður þar sem 100 ára sögu félagsráðgjafar sem alþjóðlegrar starfsgreinar verður fagnað. Þema hennar verður samstaða, inngilding, samfélagskennd og breytt sýn á sameiginlega framtíð án aðgreiningar.

Á milli heimsráðstefna eru haldnar svæðisbundnar ráðstefnur í hverri heimsálfu. Næsta Evrópuráðstefna félagsráðgjafa verður haldin í Aþenu í Grikklandi dagana 25.–27. október 2027.

Á myndinni má sjá Steinunni Bergmann formann FÍ með nýkjörnum forseta IFSW,  Eva P. Ponce de Leon frá Filippseyjum.