Fréttir

Fulltrúar FÍ á aðalfundi IFSW í Nairobi

By júní 23, 2026No Comments
Steinunn Bergmann og María Björk Ingvadóttir sækja fundinn fyrir hönd FÍ

Steinunn Bergmann, formaður FÍ og María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri, sækja tveggja daga aðalfund Alþjóðasamtaka félagsráðgjafa (ISFW) sem haldinn er í Nariobi í Kenia. Fundurinn er æðsta ákvörðunarþing samtakanna þar sem fulltrúar víðsvegar að úr heiminum koma saman til að móta stefnu fagsins, kjósa alþjóðlega stjórn og ræða helstu áskoranir samtímans. Meðal stærstu mála fundarins eru endurskoðun alþjóðlegra siðareglna félagsráðgjafa, mannréttindamiðuð velferðar-og stuðningskerfi og áhrif starfrænnar þróunar og gervigreindar á starf félagsráðgjafa.

Að fundinum loknum tekur við fjögurra daga ráðstefna SWSD 2026 þar sem yfirskriftin er „Harambee for Sustainable Shared Futures“. Þar er lögð áhersla á samstöðu, mannréttindi, félagslegt réttlæti og sjálfbæra framtíð. Alls munu á sjötta tug félagsráðgjafa frá Íslandi taka þátt í ráðstefnunni í Nairobí ásamt um 2500 öðrum félagsráðgjöfum frá öllum heimshornum.