
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV). Breytingin snýst um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika og er markmið frumvarpsins að styrkja rannsóknir, tilkynningarskyldu og skráningu slíkra atvika í velferðarþjónustu. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.
Ráðherra undirstrikaði í framsöguræðu sinni að GEV hefði víðtækar heimildir til að afla gagna við rannsókn alvarlegra óvæntra atvika en þyrfti jafnframt að reiða sig á framburð stjórnenda og starfsfólks sem veittu þjónustuna. Slíkur framburður væri lykilatriði. Samkvæmt gildandi lögum væri þó ekki tryggt að upplýsingar sem væri aflað við slíkar stjórnsýslurannsóknir yrðu ekki afhentar lögreglu. Dæmi væru um að framvinda rannsókna á vegum GEV hefði stöðvast vegna þessa.
Upplýsingar stjórnenda og starfsfólks væru oft lykilforsenda þess að greina mætti hvað hefði farið úrskeiðis og koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtækju sig. Við þetta yrði því ekki unað.
Sambærileg umgjörð og í heilbrigðisþjónustu
Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði sambærilegar breytingar á lögum um GEV og þegar hafa verið innleiddar í heilbrigðisþjónustu, með breytingu á lögum um landlækni. Í því felst meðal annars að skýrslur stofnunarinnar um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika verði ekki notaðar sem sönnunargögn í sakamálum.
Jafnframt verði ekki heimilt að nota upplýsingar sem starfsfólk eða aðrir veita stofnuninni sem sönnunargögn gegn þeim, né að afhenda gögn sem geyma framburð þeirra. Ráðherra benti í þinginu á að með þessu væri skapað það traust sem þyrfti til að þau sem byggju yfir upplýsingum gætu tjáð sig af hreinskilni og að rannsóknir skiluðu raunverulegum árangri.
Frumvarpið felur jafnframt í sér að skylda GEV til að benda lögreglu á meinta refsiverða háttsemi verði felld brott. Með því er dregin skýrari lína á milli stjórnsýslurannsókna annars vegar og sakamálarannsókna hins vegar og stuðlað að því að rannsóknir í þágu öryggis og umbóta nái fram að ganga.
