
Aðalfundur Félagsráðgjafafélags Íslands fer fram þann 28. apríl nk. kl. 16.00 og er nú kallað eftir framboðum í mikilvæg trúnaðarstörf innan félagsins.
Laus eru sæti í stjórn félagsins, auk sætis í Siðanefnd og tveggja sæta í Vísindanefnd. Mikilvægt er að félagsmenn taki virkan þátt í starfi félagsins og gefi kost á sér til að móta áframhaldandi þróun þess.
Trúnaðarstörf innan FÍ fela í sér tækifæri til að hafa áhrif á faglega stefnu, styrkja stöðu félagsráðgjafa og stuðla að öflugu og sýnilegu starfi félagsins. Þátttaka félagsfólks er lykilforsenda þess að félagið geti sinnt hlutverki sínu af krafti.
Aðalfundur er haldinn 28. apríl og því er brýnt að áhugasöm gefi kost á sér sem allra fyrst.
Félagsráðgjafar eru hvattir til að senda inn framboð eða óska eftir frekari upplýsingum með því að hafa samband við félagið á netfangi FÍ, felagsradgjof@felagsradgjof.is
