Undanfarið hefur borið á því hjá aðildarfélögum BHM, þar á meðal hjá okkar félagi, að hluti af fjöldapóstum skili sér ekki til viðtakenda. Virðist einungis um að ræða netföng hjá Gmail sem skila sér til baka með tilkynningu um að ekki hafi tekist að afhenda póstinn.
Advania hefur enga skýringu á þessu, né getur fært þetta til betri vegar og því biðjum við alla þá félagsmenn FÍ sem hafa notað Gmail netföng til að fá send til sín pósta frá félaginu, að senda okkur vinnunetföng sín, séu þau til; felagsradgjof@felagsradgjof.is
Við munum nota Facebook og heimasíðuna enn meira undir tilkynningar vegna þessa ástands.