Kerfisbreytingar innan skóla til að takast á við aðlögun barna sem hafa upplifað áföll.
Fagdeild fræðslu- og skólafélagsráðgjafa í samstarfi við Félagsráðgjafafélag Íslands og Félagsráðgjafardeild HÍ standa að morgunverðarfundi þar sem
dr. Todd I. Herrenkohl verður með erindi fimmtudaginn 3. nóvember 2022 kl. 8:30 til 11:00 á hótel Reykjavík Natura.
Dagskrá:
8:30 Móttaka og morgunverður.
9:00 Dr. Todd I. Herrenkohl, prófessor í félagsráðgjöf við University of Michigan, Trauma-Informed Programs and Practices for Schools.
10:00 Hrefna Björk Karlsdóttir, aðstoðarskólastjóri Salaskóla í Kópavogi, Áföll í lífi skólabarns og mikilvægi þverfaglegs samstarfs.
10:15 Guðrún Ebba Ólafsdóttir, kennari, Áfallamiðað skólastarf – Griðastaður.
10:30 Dr. Sigrún Harðardóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Áskoranir og tækifæri í skólum. Hvað sýna rannsóknir?
10:45 Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Innleiðing farsældarlaga.
Málstofustjóri: Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands
Dr. Todd I. Herrenkohl, prófessor í félagsráðgjöf við University of Michigan School of Social Work hefur unnið að þróun forvarnarverkefnisins TIPPS – Trauma-Informed Programs and Practices for Schools – sem verið er að innleiða í skóla í Michiganfylki í USA.
Öll velkomin ! Fundinum verður streymt á facebooksíðu Félagsráðgjafafélags Íslands
Vinsamlega skráið ykkur hér fyrir neðan og gangið frá pöntun. Því miður er uppselt á viðburðinn. Honum verður streymt á facebooksíðu FÍ
3.500 kr.Skráning