Skip to main content

Skrifstofa

Félagsráðgjafafélag Íslands er í Borgartúni 27, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:30 til 15:00

Félagsmönnum er aðallega sinnt í gegnum tölvupóst, netspjall og síma. Ef leita þarf til skrifstofunnar er best að senda tölvupóst á netfangið felagsradgjof@felagsradgjof.is þar sem starfsmenn eru af og til utan skrifstofu.

Sími skrifstofunnar er 595 5151.

Starfsmenn Félagsráðgjafafélags Íslands:

María Björk Ingvadóttir

félagsráðgjafi, er framkvæmdastjóri Félagsráðgjafafélags Íslands.

Netfang hennar er framkvaemdastjori@felagsradgjof.is

Sími: 595 5151

Steinunn Bergmann

félagsráðgjafi MBA, er formaður Félagsráðgjafafélags Íslands.

Netfang hennar er steinunn@felagsradgjof.is

Sími: 699 5111

Um Félagsráðgjafafélag Íslands

Félagsráðgjafafélag Íslands er fag- og stéttarfélag félagsráðgjafa á Íslandi. Hlutverk félagsins er að stuðla að samstöðu meðal félagsráðgjafa og standa vörð um hagsmuni þeirra, stuðla að auknum félagslegum jöfnuði og vinna gegn fordómum og félagslegu óréttlæti í íslensku samfélagi með eflingu félagsráðgjafar sem fagstéttar.

Félagsráðgjafafélag Íslands veitir félagsmönnum sínum margvíslega þjónustu og upplýsingar um réttindi þeirra. Félagsráðgjafar sem eru í öðru stéttarfélagi geta sótt um að vera fagaðilar og fá þá sendar upplýsingar um viðburði á vegum félagsins og tímarit félagsráðgjafa, sé þess óskað. Fagaðilar sem hafa greitt fagfélagsgjöld hafa einnig atkvæðisrétt og eru kjörgengir.

Félagsráðgjafafélag Íslands er eitt aðildarfélaga Bandalags háskólamanna (BHM) og njóta kjarafélagar þeirra réttinda sem sjóðir BHM veita. Starfsmenn BHM sinna margvíslegri þjónustu til félagsmanna, s.s. innheimtu félagsgjalda, rekstri sjúkra- og starfsmenntasjóða sem og orlofssjóðs. Félagið tekur virkan þátt í stefnumótandi umræðu og ákvörðunum aðildarfélaga BHM sem fara fram á formannaráðsfundum bandalagsins, aðalfundum og öðrum fulltrúafundum. Félagið á og rekur skrifstofu í sameiginlegu húsnæði BHM í Borgartúni 6.

Helstu verkefni Félagsráðgjafafélags Íslands:

Félagsráðgjafafélag Íslands er stéttarfélag félagsráðgjafa á Íslandi og hefur samningsumboð fyrir hönd félagsráðgjafa sem starfa hjá sveitarfélögum, ríki, samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og á almennum markaði. Félagið hefur frumkvæði að réttinda – og hagsmunabaráttu félagsráðgjafa.

Félagsráðgjafafélag Ísland er fagfélag félagsráðgjafa á Íslandi og stendur félagið fyrir margvíslegum verkefnum til að sinna hlutverki sínu.

Útgáfa Tímarits félagsráðgjafa er árlega, að vori. Tímaritið er gefið út á pappír en það er einnig í rafrænni útgáfu á www.timaritfelagsradgjafa.is.

Í Félagsráðgjafafélagi Íslands eru starfandi þrjár nefndir, siðanefnd, vísindanefnd og ritstjórn, sem hafa skýrt hlutverk skv. lögum félagsins.

Jafnframt eru starfandi 12 fagdeildir og 5 landshlutadeildir í félaginu sem standa fyrir morgunverðarfundum og fræðslufundum fyrir félagsráðgjafa.

Félagið stendur árlega fyrir Félagsráðgjafaþingi í samstarfi við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Tilgangur þingsins er að efla faglega hæfni félagsráðgjafa, leiða þá saman til að kynna rannsóknir á sviði félagsráðgjafar, nýjungar í þróun fags og greinar og þróun nýrra úrræða. Markmiðið er að á Félagsráðgjafarþingi komi félagsráðgjafar hvaðanæva að og ræði í málstofum og/eða vinnustofum rannsóknir um þróun fags og úrræða, nýjungar í starfi (til dæmis að kynna mál eða nýjar vinnuaðferðir) og stöðu félagsráðgjafar fyrr og nú.

Jafnframt tekur félagið virkan þátt í alþjóðadegi félagsráðgjafa sem haldinn er hátíðlegur þriðja þriðjudag í mars ár hvert.

Félagið er einnig aðili að NSSK sem er norrænt samstarf félagsráðgjafafélaga og fundar hópurinn tvisvar á ári, í hverju landi til tveggja ára í senn.

Aðalfundur félagsins er haldinn fyrir lok apríl ár hvert og fyrir hann eru lagðir ársreikningar félagsins, fjárhagsáætlun stjórnar, starfsáætlun stjórnar og skýrsla stjórnar auk annarra skýrslna. Aðalfundur er æðsta vald félagsins.

Stofnendur og fyrsta stjórn FÍ, Martrét Margeirsdóttir, Kristín Gústavsdóttir og Guðrún Jónsdóttir

Félagsráðgjafafélag Íslands var stofnað 19. febrúar 1964 – tilurð félagsráðgjafar

Félagsráðgjöf sem sérhæfð starfsgrein varð til í kringum þar síðustu aldamót. Upphaf hennar má rekja til kristilegra góðgerðarfélaga og umbótahreyfinga þeirra tíma. Áður fyrr
var það fyrst og fremst hlutverk fjölskyldunnar að annast þá meðlimi sína, sem ekki gátu séð sér farborða á eigin spýtur. Umhyggja og hjálp grundvölluðust því á skyldleika og ættarböndum. Skipulögð góðgerðarstarfsemi kom víða
í kjölfar iðnbyltingar og tengdist siðferðilegum, pólitískum og efnahagslegum hugmyndum. Starfsemi góðgerðarfélaganna var umdeild og mikil umræða um að hjálparstarfið væri illa skipulagt. Það varð til þess að komið var á fót námskeiðum fyrir fólk sem starfaði á þeirra vegum. Í framhaldi af námskeiðunum kom í ljós aukin þörf fyrir menntað starfslið og straumhvörf urðu í þessari menntun. Segja má því að víða erlendis hafi félagsráðgjafar orðið til sem vinnuafl góðgerðarfélaganna og þeir voru í raun “framleiddir” af þeim. Fram á 20. öld átti félagsráðgjöf enga kenningarlega undirstöðu, en þekking var sótt til hinna ýmsu greina, svo sem félagsfræði, heimspeki, læknisfræði, sálarfræði, siðfræði og lögfræði. Á þessu varð breyting með útkomu bókar Mary Richmond árið 1917, Social Diagnosis, en hún er talin leggja vísindalegan grundvöll að hinni viðurkenndu starfsaðferð félagsráðgjafa casework. Segja má að þessi bók Richmond hafi verið fyrsta skrefið til að gera félagsráðgjöf að sérfræðigrein.

Félagsráðgjöf á Íslandi
Á Íslandi komu fyrstu félagsráðgjafarnir til starfa um 1960 eftir að hafa stundað nám í félagsráðgjöf erlendis. Um það bil hálfum áratug síðar fóru að heyrast raddir um að rétt væri að koma á félagsráðgjafarnámi hér á landi. Fyrstu spor félagsráðgjafar á Íslandi voru tengd skipulagi framfærslu og félagsmála en þau málefni eiga aldagamlar rætur í íslensku samfélagi. Þeir aðilar sem í byrjun lögðu til að mennta félagsráðgjafa voru einmitt fulltrúar þeirra stofnana þar sem flestir félagsráðgjafar hafa unnið allt frá byrjun og fram til þessa dags, þ.e. á vegum borgarinnar (og annarra sveitarfélaga) og við sjúkrahús. Tilraunir til að koma á kennslu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands blandast meira og minna inn í umræðu um félagsvísindi almennt og uppbyggingu þeirra innan H.Í. Eftir miklar umræður innan félagsvísindadeildar var fyrst haustið 1978 nemendum í fyrsta sinn gert mögulegt samkvæmt Kennsluskrá háskólans að huga að námi í félagsráðgjöf sem miðaði að öflun starfsréttinda á sviði félagsráðgjafar. Til að byrja með var einungis eitt námskeið í boði í félagsráðgjöf og voru stundakennarar Guðrún Jónsdóttir og Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafar og Sigríður Jónsdóttir, félagsfræðingur stundakennarar í félagsráðgjöf. Í maí 1980 kom fram umræða um tvo möguleika á félagsráðgjöf eftir 1982:

1) Tekið yrði upp sérstakt nám í félagsráðgjöf sem aðalgrein til BA prófs til 120 eininga. Þannig yrði félagsráðgjöf ný aðalgrein við deildina.

2) Haldið yrði áfram á braut þeirri er hafin var, þ.e. þriggja ára nám til BA prófs í aðalgreinunum, félagsfræði, sálarfræði eða uppeldisfræði ásamt sérnámskeiðum í félagsráðgjöf, alls ca. 120 einingar.

Fyrsti kennslustjóri í félagsráðgjöf var Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Um var að ræða langan þróunarferil náms í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands en fyrstu félagsráðgjafarnir luku þar námi á árinu 1982.

Stofnun SÍF
Fyrsti íslenski félagsráðgjafinn, Guðrún Jónsdóttir, kom heim frá námi árið 1957. Hún leitaði fyrir sér með starf á sjúkrahúsi og fékk þau svör að ekkert leyfi væri fyrir hendi til að ráða félagsráðgjafa. Henni var hins vegar boðin staða hjúkrunarkonu, sem hún hafnaði. Síðan réði hún sig til félagsráðgjafastarfa hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkurborgar.

Í kringum 1960 komu tveir nýir félagsráðgjafar til starfa og réðust báðir til Reykjavíkurborgar, Margrét Margeirsdóttir til Geðverndardeildar barna á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og Margrét Steingrímsdóttir til Skrifstofu félags- og framfærslumála. Skömmu síðar kom fjórði félagsráðgjafinn, Kristín Gústavsdóttir, sem hóf störf hjá Geðverndardeild barna á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.

Þann 19. febrúar 1964 stofnuðu þessir fjórir félagsráðgjafar félag sem hlaut nafnið Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu Margrét Margeirsdóttir, formaður, Guðrún Jónsdóttir, ritari og Kristín Gústavsdóttir, gjaldkeri. Auk þeirra kom Margrét Steingrímsdóttir að stofnun félagsins.

Útdráttur úr Félagsráðgjafatali.