Fagleg samstaða – þekking – áhrif
Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ) er bæði fagfélag og stéttarfélag félagsráðgjafa. Félagið vinnur að því að efla félagsráðgjöf sem fag- og vísindagrein, standa vörð um fagmennsku og siðfræði og gæta sameiginlegra hagsmuna félagsráðgjafa.
Fagfélagsaðild er ætluð félagsráðgjöfum sem eru með stéttarfélagsaðild annars staðar en vilja jafnframt tilheyra faglegu samfélagi félagsráðgjafa, taka þátt í starfsemi FÍ og stuðla að framþróun fagsins.
Hvað felst í fagfélagsaðild?
Full félagsréttindi
Fagfélagar hafa kosningarétt og kjörgengi samkvæmt lögum FÍ og geta tekið þátt í félagsstarfi og stefnumótun félagsins.
Fræðsla og fagleg tengsl
Fagfélagar geta tekið þátt í Félagsráðgjafaþingi, fræðslufundum, námskeiðum og starfsemi fagdeilda. Þeir greiða sömu þátttökugjöld og annað félagsfólk.
Fagleg ráðgjöf og aðstoð
Fagfélagar geta leitað til FÍ eftir faglegri ráðgjöf og aðstoð við úrlausn faglegra álitamála sem upp kunna að koma í starfi.
Fagleg hagsmunagæsla
FÍ vinnur að eflingu félagsráðgjafar, faglegu sjálfstæði, starfsþróun og auknum sýnileika stéttarinnar. Með aðild taka fagfélagar þátt í þeirri sameiginlegu hagsmunagæslu.
Upplýsingar og útgáfa
Fagfélagar fá upplýsingar um starfsemi félagsins, viðburði og fagleg málefni. Þeir fá einnig Tímarit félagsráðgjafa sent til sín án endurgjalds.
Hvað kostar fagfélagsaðild?
Árlegt fagfélagsgjald er 16.000 krónur og er innheimt að hausti.
Hver er munurinn á fagfélagsaðild og stéttarfélagsaðild?
Fagfélagsaðild veitir aðgang að faglegri starfsemi, félagsréttindum og faglegri ráðgjöf FÍ.
Hún felur hins vegar ekki í sér kjarasamningsumboð FÍ eða réttindi í kjaratengdum sjóðum, svo sem sjúkra-, orlofs- og starfsmenntasjóðum. Slík réttindi ráðast af stéttarfélagsaðild, greiðslum í viðkomandi sjóði og reglum hans.
Hverjir geta orðið fagfélagar?
Félagsráðgjafar sem hafa lokið viðurkenndu námi í félagsráðgjöf og fengið íslenskt starfsleyfi geta sótt um fagfélagsaðild samkvæmt lögum FÍ.
Vertu hluti af faglegri samstöðu félagsráðgjafa
Fagfélagsaðild er tækifæri til að efla fagmennsku, miðla þekkingu, mynda fagleg tengsl og hafa áhrif á framtíð félagsráðgjafar á Íslandi.
Með fagfélagsaðild styrkir þú bæði þína faglegu stöðu og sameiginlega rödd félagsráðgjafa á Íslandi.
Félagsráðgjafafélag Íslands – fyrir fagið, félagsráðgjafa og samfélagið.
