Skip to main content

22. október – Minning Ólafíu Jóhannsdóttur

Samstarf Félagsráðgjafafélags Íslands, Hvítabandsins og Kvenréttindafélags Íslands. Hefst með guðþjónustu í Lágafellskirkju kl. 11:00 og síðan verður haldið að Mosfelli þar sem blómsveigur verður lagður að minnisvarða Ólafíu. Öll velkomin.

 

23. október – Verndandi tengslahegðun og þvermenningarleg áhrif

Félagsráðgjafafélag Íslands í samstarfi við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands bjóða upp á fyrirlestur með Andrea Landini sem fjallar um tengslahegðun á grunni DMM tengslahegðunarmódelsins. Fyrirlesturinn hefst kl. 13:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

 

24. október – Kvennaverkfall: Opið hús í Borgartúni 6 11:00 – 13:00

Samstarf Félagsráðgjafafélags Íslands, Hvítabandsins og Kvenréttindafélags Íslands heldur áfram og er Opið hús hjá FÍ hliðarviðburður Kvennaverkfallsins. Fjallað verður um Ólafíu Jóhannsdóttur í máli og myndum en síðan verður haldið til samstöðufundar á Arnarhól. Öll velkomin.

 

25. október ASEBA námskeið

Félagsráðgjafafélag Íslands og fagdeild skólafélagsráðgjafa standa fyrir námskeiði um ASEBA matstækin þann 25. október nk. kl. 8:30-12:00 Á Zoom. Kennari er Halldór S. Guðmundsson, dósent við félagsráðgjafardeild HÍ.

Markmið með námskeiðinu er að þátttakendur kynnist og/eða endurnýi kynni sín af ASEBA matslistakerfinu og notkunarmöguleikum þess. Áhersla verður á notkunarmöguleika Aseba mælitækjanna í skólum og skólaþjónustu sérstaklega. Öll velkomin en nauðsynlegt að skrá sig með því að senda póst á felagsradgjof@felagsradgjof.is

 

26. október Vinnusmiðja Siðanefndar

Siðanefnd félagsráðgjafafélags Íslands heldur vinnusmiðju 26. október kl. 14:00 – 16:00 í Borgartúni 6

Efni vinnusmiðjunar er að fjalla um þá breytingu á siðareglum félagsráðgjafa er kveða á um að félagsráðgjafar taki þátt í stefnumótun stjórnvalda og umræðu um siðferðisleg gildi í samfélaginu. Öll velkomin en nauðsynlegt að skrá sig með því að senda póst á felagsradgjof@felagsradgjof.is